BJARMALAND

kallinn

18.01.2011 22:49:31 / pirmin

Að versla skó á netinu

ER HÆGT AÐ VERSLA SKÓ Á NETINU?

Já það er ekkert mál. þó að skónúmer geti verið misjöfn milli framleiðenda þá er ennþá ein mælieining sem lýgur aldrei, en það er gamli góði sentímeterinn. Það er mjög oft skráð í millimetrum inn í tungunni á skónum hvað hann er langur. 
Einnig er hægt að mæla skó sem maður á fyrir eða jafnvel sjálfan fótinn sem skórinn á að klæða.
Svo er bara að panta og njóta þjónustunar sem er í boði. Skórnir koma heim með póstinum án aukagjalds.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2011 23:49:54 / pirmin

Landinn og landið

Ýmislegt blöskrar manni á landinu góða sem maður býr í en fátt eins mikið og verðlag þessa dagana og síðustu 2 ár.
Þegar maður fór í jólainnkaupin var erfitt að finna sniðugar gjafir fyrir eðlilegan pening, ég tala nú ekki um þegar maður er orðinn tveggja barna faðir og þarf að kaupa föt og annað á drengina. Maður fær hreinlega svima við að reyna að versla eitthvað á drengina hér á landi. Spurning hvað veldur, hvort aðfluttar vörur séu orðnar svona dýrar í innflutningi eða hvort græðgin ræður þessu.

Hvort sem er þá er allavega hægt að versla skó á krílin og sjálfan sig á einum stað án þess að falla í yfirlið yfir verðum. 
Það er á vefsíðunni www.superskor.is 

þar er boðið upp á skófatnað á sanngjörnum og töluvert betri verðum en maður sér hérlendis. Hvet alla til að kíkja þar við skoða úrvalið sem fer vaxandi.

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2011 22:04:39 / pirmin

Skór



www.superskor.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 15:58:44 / pirmin

Allt að gerast.....

SKO KALLINN

Allt að gerast.......nýtt útlit og allur pakkinn.

Nú liggur maður dáleiddur yfir Bandinu Hans Bubba þunglynda. Það er auðvitað ekki nokkur hemja hvað kallinn er leiðinlegur í þessu hlutverki sínu. Þarna erum við að tala um rúmlega fimmtugann mann sem hefur afrekað ýmislegt í tónlistarbransanum í gegnum tíðina og þó svo að ég sé ekki neinn rosalegur Bubba fan þá er ég alveg tilbúinn að skrifa undir það að hann er mikill tónlistarmaður og mjög afkastamikill og áberandi í daglegu lífi.
En þrátt fyrir allt það, þá skil ég ekki hvernig hann getur setið í þessum stól og látið sumt af þessum ótrúlegu "álitum" sínum flakka á fólk í beinni útsendingu. Í þessari keppni eru allavega 2 keppendur sem eru að taka lög sem Bubbi hefði aldrei geta sungið og þeir eru ekki bara að skila þeim ágætlega frá sér, þeir eru að skila þeim mjög vel og stundum frábærlega.

En nóg um það...................áfram Eyþór.

Heyrði snilldarlegt hugtak sem ég verð að láta flakka hérna.

"Þetta er kannski ekki sönn saga, en þetta er sannarlega saga"

Annars er allt gott að frétta, sel bíla í 10 tíma á dag og er Pabbi c.a 3 tíma og svo fer ég að sofa og endurtek leikinn um leið og ég vakna.

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 09:21:00 / pirmin

Bensíntittir eru í útrýmigarhættu.

 

Fór inn á bensínstöð á Laugardags-seinnipart, þurfti að setja rúðupiss og svoleiðis á bílinn af því að hérna fyrir sunnan þá má hitastigið ekki fara nálægt frostmarki án þess að einhver geðsjúklingur á vörubíl salti allar götur og vegi á landshlutanum.

Alla vega þá fór ég á bensínstöð og fór að spá í bensínafgreiðslumannin þarna á þessari tilteknu stöð. Hann sat inn í einhverri  glerkompu með hitablásara allur í keng og fölari en albínói með hitasótt. Hann virtist reyna hvað best hann gat að taka ekki eftir mér og ég þurfti að setja á svið mikinn leikþátt með tilheyrandi látbragði til þess að ná honum út úr hitakassanum sínum. Það hafðist að setja rúðupiss á bílinn og mér til mikillar gleði þá biðu hans fjölmörg verkefni þegar hann hafði lokið sér af við bílinn minn og greinilega höfðu nokkrir beðið eftir að litla greyið kæmi út úr kassanum sínum og vill ég meina að ég hafi unnið góðverk með leikritinu mínu sem dró hann út í lífið.

Svo fer ég inn til að borga og þá tekur á móti mér stúlkukind sem var voða brosmild og ég ákvað að best væri að skella sér á eina pylsu. Þá kemur nú annað sem mikið hefur breyst. Ef maður fær sér pylsu þá er það ekkert eins og það var að þú segir hvað þú vilt fá á hana heldur er bara spurt hvaða lauk þú vilt og svo sósar þú bara sjálfur.

Miðað við þessa þróun þá líður ekki að löngu þangað til að maður þarf að skella sér í vinnugallann áður en maður fer á bensínstöð til að geta afgreitt sig sjálfur.


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 13:18:47 / pirmin

Kaupalög og Samningsréttur

Nú er ég búinn að eyða góðum hluta síðustu vikna á skólabekk. Það tók á að sitja og hlusta á sprenglært fólk tala um draugleiðnlega hluti eins og Samningsrétt, Kaupalög, virðisaukaskatt og Veðrétti. Þetta er ágætis leið til að tryggja kvalarfullan og hægan dauðdaga hjá mér.

 

Styttist í norðuferð bolti og bjór


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 16:39:49 / pirmin

Helvíti er langt síðan síðast.......

Já góðann daginn

 

ég hef ekki svo mikið sem kíkt inn á þessa síðu í 2 mánuði. En ég er á lífi og sparkandi (alive and kicking). Bý á Selfossi, er að selja bíla, er einn af mjög fáum heiðarlegu bílasölum landsins.

Allt er í blóma, einkasonurinn dafnar vel.

Áfram Dalvík 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 12:55:31 / pirmin

Nýr Blogg-Kóngur

Vill ég benda öllum glaseygðum netfíklum sem flakka á milli bloggsíðna til þess eins að drepa tímann að það er komin ný bloggsíða á vefinn. Það er enginn annar en MÆSI eða Þórir Mæju sem er farinn að tjá skoðanir sínar á vefnum. www.blog.central.is/hupperinn

 

Vill ég benda lesendum á það að ef nafn mitt er einhversstaðar notað í frásögnum hans þá eru 77% líkur á að hann sé að ljúga upp á mig.


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 08:59:36 / pirmin

SPÆJÓ

ok ok ok

 

Ég er ekki beint virkasti bloggarinn í bænum þessa dagana. En ég fer að vinna úr því.

 

Ég vaknaði í morgun með lagið JÓN SPÆJÓ á heilanum....................Hvað er það????


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 11:51:01 / pirmin

KAMPAVÍN

 

HÉR ER LISTI YFIR ÞÁ AÐILA SEM ÆTTU AÐ VERA ATVINNULAUSIR EÐA ÞAÐAN AF VERRA..................

 

1. SÁ AÐILI SEM ÁKVAÐ AÐ RÁÐA ELLÝ SEM DÓMARA Í X-FACTOR. (ÞAÐ HEFÐI ALLAVEGA ÁTT AÐ VERA SKILYRÐI FYRIR STARFINU AÐ VERA AF ÞESSARI PLÁNETU OG TALA ÍSLENSKU).

2. SÁ AÐILI SEM ÁTTI OG FRAMKVÆMDI HUGMYNDIRNAR AÐ NÝJU AUGLÝSINGARHERFÐINNI HJÁ DOMINO´S. (EINHVER DJÖFULSINS TRÉDÚKKA AÐ SEGJA 5 AURA BRANDARA, HVAÐ VARÐ UM FÆREYINGINN?)

3. SÁ AÐILI SEM ÁKVAÐ AÐ NÚ VÆRI RÉTTI TÍMINN TIL AÐ SETJA AF STAÐ NÝJANN SJÓNVARPSMARKAÐ Á SKJÁ EINUM. (STEIKARHNÍFAR OG LÍKAMSRÆKTARTÆKI ERU EKKI NEINAR NÝJAR UPPFINNINGAR OG BRAUÐKASSINN MEÐ UTANBORÐSMÓTORNUM SUCKAR).

4. SÁ AÐILI SEM SKRIFAÐI UPP Á FJÁRVEITINGAR TIL BYRGISINS. (HVAÐ VAR ÞAÐ Í FARI GUÐMUNDAR SEM GAF VÍSBENDINGAR UM AÐ HANN VÆRI EKKI GEÐSJÚKUR HÓÐNAUÐGARI MEÐ HEADSETT SEM ER BEINTENGT VIÐ GUÐ?)

5. SÁ AÐILI SEM ÁKVAÐ AÐ EYÐA 400 MILLJÓNUM  Í UPPBYGGINGU SKÍÐASVÆÐA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU. (GLEYMDIST KANNSKI ALVEG AÐ HUGSA DÆMIÐ TIL ENDA, ÞAÐ HEFUR NEFNINLEGA EKKI SNJÓAÐ Í BLÁFJÖLLUM SEM KALLAST GÆTI SÍÐAN 1996.)

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 14:53:14 / pirmin

Eiki Hauks

 

JÆJA KOMINN TÍMI Á NOKKRAR LÍNUR.

EIKI HAUKS KOM SÁ OG SIGRAÐI Í EUROVISION SEM ER GOTT FYRIR MINNIHLUTAHÓPA, HANN ER JÚ RAUÐHÆRÐUR. ÉG ER EKKERT BRJÁLÆÐISLEGA HRIFINN AF LAGINU OG HELD ENN Í VONINA AÐ ÞEGAR LJÓSIN KVIKNA Á SENUNNI Í FINNLANDI Á ÞÁ TAKI HANN BARA GAGGÓ VEST, ÉG HELD AÐ ÞAÐ GÆTI SKORAÐ NOKKUR STIG. ANNARS ER ÉG EKKERT SVARTSÝNN Á KEPPNINA SJÁLFA VIÐ SENDUM JÚ EITT ÁRIÐ ELDHEITANN SMELL SEM HÉT SJÚBBÍ DÚ EÐA EITTHVAÐ ÁLÍKA EN ÞAÐ LAG VAR EKKERT MINNA EN HLJÓÐMENGUN OG ÉG TEL EIKA VERA MEÐ LAG SEM ER NOKKRUM KÍLÓUM BETRA.

---------------------------------------------------------------------------------------------------------

ANNARS VILDI ÉG SENDA LAGIÐ "ÞÚ TRYLLIR MIG" EÐA "YOU DRIVE MY CRASY" ÞAÐ VAR SVONA EKTA EUROTRASH LAG SEM HEFÐI GETAÐ GERT GÓÐA HLUTI. VEIT SAMT EKKI ALVEG MEÐ TEXTANN Í ÞVÍ LAGI EN ÉG FÓR EINHVERRA HLUTA VEGNA AÐ FLISSA Í HVERT SKIPTI SEM ÉG HEYRÐI HLUTA ÚR LAGINU. ÞETTA VORU SVOLTIÐ KLÍJANDI LÍNUR. "KAMPAVÍN, JARÐABER, SKINN VIÐ SKINN. ENDA SÁ ÉG ÞETTA ILLA FYRIR MÉR Á ENSKU "STRAWBERRIES, CHAMPAGNE SKIN AGAINST SKIN. EN ÁFRAM EIKI.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 17:19:17 / pirmin

Part 2

 

jæja þá er það seinni hlutinn af brúðkauðpshelgini frægu.

 

Eftir að við vorum búnir að leggja okkur ferðafélagarnir og jafna okkur á ótrúlegum uppátækjum sem áttu sér stað í veislunni góðu þá ákváðum við að skella okkur á McDonalds og fá okkur síðbúinn morgunverð. Við gistum niðrá Kárastíg sem er í miðbænum fyrir þá sem ekki vita. Rétt í þá mund er við erum að loka útidyrahurðinni þá sjáum við að maður nokkur kemur labbandi yfir götuna og stefnir beint á okkur. Hann heilsar og spyr "strákar viljiði að ég reddi deginum fyrir ykkur?" og við litum á hvorn annan glottandi félagarnir og sáum svosem ekkert athugavert við það að bláókunnugur maður ætlaði að redda deginum fyrir okkur svona um leið og hann var að byrja. Og hann heldur áfram "ég skal redda deginum fyrir ykkur en það kostar ykkur 150 kall á mann" aftur litum við á hvorn annan og gátum ekki sleppt þessu tækifæri án þess að nýta okkur það. Við réttum manninum 300 ílsenskar krónur og iðuðum í skinninu eftir frekari upplýsingum. Og þegar hann hafði talið k´ronurnar leit hann á okkur grafalvarlegur og sagði "ég er búinn að bóka THE WHALERS til íslands" ok margir myndu halda að þarna hefðum við kastað frá okkur 300 krónum fyrir ekki neitt en bíði hæg hann var ekki búinn. "ég ætlaði að láta þá spila á NASA en það er bara alltof lítið strákar mínir, þannig að ég bókaði LAUGARDALSHÖLLINA og THE WHALERS ætla að spila þar" þarna sjáiði að við vorum í raun að fá upplýsingar sem voru mikið' meira virði en einhver skitin 300 kall (hóst). En hann var ekki aldeilis búinn að færa okkur það sem við höfðum borgað fyrir. "svo er ég búinn að semja við HJÁLMA að koma saman og hita upp fyrir THE WHALERS og svo ætla ég að vefja 7-8 kíló af MARIJUANA og láta jónunum rigna yfir tónleikagestina og þarna verður standandi reggí-partý fram á nótt" já gott fólk þið heyrðuð það fyrst hér á Bjarmalandi að það verður útúrdópað reggí-partý í Laugardalshöll þar sem THE WHALERS og HJÁLMAR koma fram. Svo spurði hann "hvað viljiði marga boðsmiða?" ég bað um 17 stykki þannig að þeir verða sennilega á boðstólnum hér á síðunni á næstu dögum, vikum, mánuðum eða árum (hóst).

 já það er ekki öll vitleysan eins.

En þarna var á ferðinni eitt af óskabörnum þjóðarinnar sem hefur vantað pening upp í þessi 7-8 kíló af marijuana sem hann ætlar að fara að vefja, sem gæti óneitanlega tekið svolitla stund að safna fyrir og svo auðvitað að vefja öll ósköpin. En eftir þennan stutta fyrirlestur þá héldum við félagarnir heldur betur sáttir á vit nýrra ævintýra á McDonalds.

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 12:14:55 / pirmin

valsinn...........

Jæja komiði sæl og blessuð....................

ég fór í brúðkaup um helgina sem er ekki frásögu færandi eitt og sér, en einhverra hluta vegna þá gerist alltaf eitthvap brjálæðislega fyndið í brúðkaupum og trúiði mér gott fólk að þetta brúðkaup var engin undantekning. Það var raðað á borð þannig að maður las bara á svona lista hvar maður ætti að hlamma sér niður og hverjir væru með manni á borði. Ég lenti á borði með bróður mínum og vini mínum og frændum, og svo sat þarna maður sem ég kann ekki við að vera að nafngreina, nema hvað þá reyndist þessi maður vera útfarastjóri og var svona líka hress.............Not........... hann var svo dapur að ég er viss um að þegar hann og vinnufélagar hans eru að vinna með þá dauðu á útfararstofunni þá eru sennilega meiri líkur á að líkið myndi segja brandara eða fyndna sögu heldur en þessi ákveðni sessunautur minn. Hann sat þarna með konunni sinni sem var aðeins búinn að missa sig í ljósunum og var orðinn eins og gamalt brúnt leðurveski vegna þessarar ofnotkunar á grevisólinni.

En þetta er ekki allt............ó nei.................... þarna var hljómsveit og eftir matinn stigu gestir dans og einn af gestunum var svona miðaldra maður sem var fljótur út á gólfið þegar bandið byrjaði að spila og fólk tók strax eftir fimum fótaburði þessa manns enda kom seinna upp úr krafsinu að hann var fyrrverandi íslandsmeistari í diskódönsum..........ekki slæmt það.......... allavega þegar líða tók á kvöldið var þessi maður búinn að drekka og dansa yfir sig á alla kanta. Fótaburður hans var ekki lengur eins fimur og uppátæki þessa manns fóru fljótlega að fara úr skorðum. Hann dansaði á ljósakastara, stal nótnastandinum af söngvaranum og hljóp með hann sigurhring um gólfið, hann reif sig úr að ofan og tók bæði orminn og armbeygjur, hann sturtaði bjór yfir trompetleikarann og svona mætti lengi telja.

En aðalatriði hjá honum var alveg skuggalegt, þar sem ég sat í sakleysi mínu við eitt borði með frænku mína á annari hönd og vinkonu mína á hina þá vippar diskódansarinn sér aftan að mér skvettir löppinni yfir öxlina á mér og segir við vinkonu mína "farðu úr nærbuxunum" svo snýr hann sér að frænku minni og kyssir hana þéttingsfast á munninn og dansar svo tignarlegur á brott.

Já það er ekki öll vitleysan eins og það var ýmislegt sem kom skemmtilega á óvart í þessari suðurferð minni en ég sé fram á það að ég þurfi að skrifa þessa ferðasögu í að minnsta kosti 3 hlutum.

en hér lýkur fyrsta hluta.......................


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 10:14:01 / pirmin

USUUSNNS

Djöfull komum við til með að rúlla upp júróvision í ár ef eitthvað er að marka fyrsta undanúrslitakvöldið sem var á laugardaginn, þetta var hvert meistarastykkið á fætur öðru og greinilega mikið lagt í alla lagasmíð og textagerð. Ég persónulega hefði viljað sjá hálfbróðir Gumma í byrginu komast áfram, mér fannst hann spila og syngja sitt lag af stakri snilld.

ATH þessi texti var skrifaður í kaldhæðni..................

------------------------------------------------------------------------

Greyið Gummi í byrginu hann hefur greinilega átt erfitt síðustu ár, bílarnir hans alltaf að endurnýjast, hann misnotar sjálfan sig að eigin sögn, og ofan á þetta allt saman þá er verið að nauðga honum ítrekað. Hann á skilið að fara í smávegis frí blessaður kallinn og mæli ég með að honum verði boðið c.a 20 ára orlof á kvíabryggju honum að kostnaðarlausu.

------------------------------------------------------------------------

Og áfram ísland auðvitað. Eftir að við sigruðum spikfeita bjórdrykkjumenn frá ástralíu í hörkuleik þá tóku Ruslana og félagar frá Úkraínu okkur í nefið gjörsamlega og enn sönnum við það að við kunnum að drulla á okkur í beinni útsendingu betur en nokkur önnur þjóð. Handbolti er líka snerting án íþróttar.

------------------------------------------------------------------------

Góður barnaníðingurinn sem var í kompá í gær. Burt séð frá öllu sem kom í ljós í þættinum og allt sem hann sagði þá fannst mér best það sem kom fyrst upp úr honum þegar hann labbaði inn í íbúðina þar sem hann ætlaði að fara að misnota unga stúlku. Þegar hann var búinn að brasa þvílíkt við að læsa hurðinni þá fer hann úr skónum og gengur inn í stofu en engin stelpa birtsit þar heldur ritstjóri kompás. Ritstjórinn segir strax "hvað ert þú að gera hér?" og þá heyrist í níðingnum "nei blessaður" ekki  beint það sem maður hefði búist við að heyra frá honum. frekar hefði ég búist við "nei hver djöfullinn" eða "hvað er í gangi?" en nei nei hann segir bara "nei blessaður" eins og hann sé að hitta félaga sinn úr barnaníðingsfélaginu á MSN.


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 09:29:09 / pirmin

Árið.........

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla, eins og segir í kvæðinu...

------------------------------------------------------------------------

Já það er komið 2007 og þá þarf maður að fara að finna aðferðir til að muna að 2006 er búið, það nefninlega tekur mig vanalega fram í Apríl að muna það, þrátt fyrir að ég skrifi dagsetningar nokkuð reglulega í vinnuni.

------------------------------------------------------------------------

Ég er ekki mikið fyrir að strengja áramótaheit en setti mér eitt slíkt markmið núna, ég ætla að reyna að minnka drykkju á óhollum drykkjum, og bara svo það sé á hreinu þá flokkast bjór EKKI undir óhollan drykk. Við erum hérna að tala um gosdrykki og solleiðis. Það kemur nefninlega stundum fyrir að stóri strákurinn rennir niður 2 lítrum af coka cola með einni máltíð og það er ekki sniðugt en djö....... er það gott samt.

------------------------------------------------------------------------


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2